Hnýfill
Uppskriftir

Fiskibollur með lauksmjöri

Hversdagsmatur sem stendur fyrir sínu. Hér er lauksmjörið sem fer svo vel með fiskibollunum.

Beint í uppskriftinaSkoða vöruna
Fiskibollur með lauksmjöri

Hráefni

  • Fiskibollur frá Hnýfli
  • 2 laukar
  • 50–80 g smjör
  • 3 msk olía
  • Soðnar kartöflur til að bera fram með

Aðferð

  1. Hitið fiskibollurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
  2. Afhýðið laukinn, skerið í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.
  3. Hitið smjör og olíu á djúpri pönnu. Látið laukinn mýkjast við meðalhita í um 10 mínútur án þess að brúna hann.
  4. Berið fiskibollurnar fram með lauksmjörinu og soðnum kartöflum.
Byggt á uppskrift Hnýfils · Frumheimild