Hnýfill

Gott á borðið

Einfaldar uppskriftir úr eldhúsi Hnýfils. Fyrir hversdaginn, helgina og fólkið við borðið.

Fiskiborgari með ýsu í tempura

Fiskiborgari með ýsu í tempura

Fiskibollur með lauksmjöri

Fiskibollur með lauksmjöri

Blínís með reyktum laxi

Blínís með reyktum laxi

Nýtt úr eldhúsinu

Uppskriftir frá Hnýfli á Instagram.

Uppskriftaspjald Hnýfils: Kartöflusúpa með reyktum laxi

Kartöflusúpa með reyktum laxi

Instagram
Lesa uppskriftina

Hráefni

  • Beykireyktur lax frá Hnýfli
  • Kartöflur
  • Blaðlaukur & tvö hvítlauksrif
  • Grænmetissoð
  • Rjómi
  • Graslaukur & nýmalaður pipar

Aðferð

  1. Mýktu einn blaðlauk og tvö hvítlauksrif í smjöri. Bættu við fimm kartöflum í bitum og lítra af grænmetissoði og leyfðu þessu að malla þar til kartöflurnar eru mjúkar. Maukaðu súpuna og hrærðu smá rjóma saman við.
  2. Rífðu beykireyktan lax frá Hnýfli yfir hverja skál rétt áður en hún er borin fram og toppaðu með ferskum graslauk og nýmöluðum pipar.
Uppskriftaspjald Hnýfils: Fiskur í raspi með sítrónusósu

Fiskur í raspi með sítrónusósu

Instagram
Lesa uppskriftina

Hráefni

  • Fiskur í raspi frá Hnýfli
  • Sýrður rjómi
  • Sítrónusafi
  • Fínsaxaður graslaukur
  • Salt og pipar

Aðferð

  1. Settu fisk í raspi frá Hnýfli í ofninn eftir leiðbeiningunum á pakkanum. Á meðan hrærir þú saman sýrðum rjóma, örlitlum sítrónusafa, fínsöxuðum graslauk og pipar.
  2. Berðu svo fiskinn fram með sósu og soðnum kartöflum eða hrísgrjónum ásamt fersku salati.
Uppskriftaspjald Hnýfils: Pasta með beykireyktum laxi

Pasta með beykireyktum laxi

Instagram
Lesa uppskriftina

Aðferð

  1. Sjóðið pasta að eigin vali.
  2. Hitið rjóma og sítrónubörk í potti
  3. Bætið við parmesan og svartri piparblöndu
  4. Blandið saman
  5. Leggið laxinn varlega yfir (hann á bara að volgna, ekki eldast frekar)
  6. Setjið ferskan graslauk og sítrónusafa rétt áður en rétturinn er borinn fram.

Í eldhúsinu hjá Lindu Ben.

Uppskriftir úr samstarfi við Lindu Ben. Opnast á vef hennar.